mobile navigation trigger mobile search trigger
18.04.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 18. apríl

Engin breyting hefur orðið á fjölda smitaðra á Austurlandi síðasta sólarhringinn, en þeir eru átta talsins. Tveir þeirra eru í einangrun. Sextán eru nú í sóttkví.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 18. apríl

Samráðshópur um áfallahjálp, - hugum að andlegri heilsu og velferð

Samráðshópar um áfallahjálp í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi vilja minna á nauðsyn þess að huga að andlegri heilsu og velferð hjá bæði sjálfum sér og samferðafólkinu á þessum óvenjulegu tímum. Eðlilegt er að margir finni fyrir öryggisleysi og kvíða þessa dagana. Einsemd og einmanaleiki geta líka komið fram eða aukist, nú þegar hefðbundin starfsemi  og samgangur milli fólks hefur raskast vikum saman af völdum faraldursins.

Þurfir þú sjálf/sjálfur á stuðningi að halda eða teljir einhvern þurfa slíkan stuðning, til dæmis uppörvandi samtölum, sálgæslu eða ráðgjöf, aðstoð við matar- eða lyfjakaup, heimaþjónustu eða heimahjúkrun, þá ert þú hvött/hvattur til að hafa samband við félagsþjónusturnar, HSA, kirkjuna eða Rauða krossinn og koma á framfæri ábendingum eða óska eftir samtali eða stuðningi. Það er engin skömm að því að þurfa stuðning og uppörvun – við erum öll að glíma við erfiðar aðstæður og komumst í gegnum þær með því að styðja hvert annað og hjálpast að