mobile navigation trigger mobile search trigger
23.10.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 23.október

Enginn er með virkt COVID smit á Austurlandi. Aðgerðastjórn vekur athygli á að grímuskylda er í verslunum þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð.

 

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 23.október

Reglunni hefur ekki í öllum tilfellum verið fylgt og m.a. á annatíma matvöruverslana. Reglan hefur þegar verið áréttuð við stjórnendur slíkra verslana í fjórðungnum og hið sama er gert hér á þessum vettvangi við íbúa. Markviss grímunotkun okkar í verslunum og annars staðar þar sem erfitt er að tryggja tveggja metra fjarlægðarmörk, getur orðið eitt af því sem tryggir þig og þá sem þú umgengst og síðast en ekki síst áframhaldandi gott ástand á svæðinu. Segja má að þetta gildi á öllum tímum í matvöruverslunum en sérstaklega á annatímum. 

Gerum þetta saman, fylgjum reglum og gætum að okkur alltaf og allsstaðar.