mobile navigation trigger mobile search trigger
23.05.2023

Tilkynningar til íbúa með smáskilaboðum

Fjarðabyggð hefur tekið í notkun smáskilaboðakerfi sem býður upp á að senda sms skilaboð til íbúa í ákveðnum götum og hverfum sveitarfélagsins. Skilaboð verða t.d. send út ef viðgerðir eru fyrirhugaðar á vatnslögnum.

Tilkynningar til íbúa með smáskilaboðum

Þá eru send skilaboð til íbúa í þeim húsum, götum sem við á þegar loka þarf fyrir rennsli kalda vatnsins í stuttan tíma vegna lekaleitar og/eða viðgerðar.

Skilaboðin eru send í gegnum kerfi 1819 og íbúar sem vilja fá upplýsingar sendar þurfa að gæta þess að vera með rétta skráningu á 1819.is