mobile navigation trigger mobile search trigger
20.11.2020

Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2020

Árlega veitir Fjarðabyggð umhverfisviðurkenningu sem er í senn hvatning og viðurkenning til handa þeim sem eru til fyrirmyndar í umgengni á lóðum sínum. Í ár eru Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar veitt í fjórða sinn

Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2020
Frá verðlaunaafhendingunni. Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Ásta Jóhanna Einarsdóttir, Guðmundur Bjarnason og Anna Berg Samúelsdóttir, Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar

Í ár er engin undantekning á þessari skemmtilegu venju, þrátt fyrir það ástand sem skapast hefur vegna COVID-19.  Þó varð bæði dráttur á afhendingu viðurkenningarinnar, vegna þessa ástands, ásamt því að ekki er unnt að bjóða til sérstaks viðburðar í kringum afhendingu verðlaunanna eins og vanin hefur verið.

Um mitt sumar óskað Fjarðabyggð eftir ábendingum íbúa um tilnefningar um snyrtilegustu lóðir í þremur flokkum: í byggð, fyrirtækis og í dreifbýli. Í ár var það svo að einungis barst tilnefning fyrir snyrtilegustu lóð í byggð. Hlutskörpust í innsendum tilnefningum og samkvæmt niðurstöðu matsaðila voru hjónin Ásta Jóhanna Einarsdóttir og Guðmundur Bjarnason, Sunnugerði 15 á Reyðarfirði.

Þau Ásta og Guðmundur hafa lagt mikla vinnu og natni í garðinn við hús sitt á Reyðarfirði og þar má glöggt sjá að þar fer fólk sem hefur mikin metnað fyrir því að hafa fallega lóð við hús sitt.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þau hjónin taka á móti viðurkenningunni sem afhent var af Eydísi Ásbjörnsdóttur, forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, og Önnu Berg Samúelsdóttur, umhverfisstjóra.

Fjarðabyggð óskum þeim hjónum innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Fleiri myndir:
Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2020
Garðurinn hjá Ástu og Guðmundi við Sunnugerði 15 á Reyðarfirði er afar glæsilegur