Fjarðabyggðarhafnir óska eftir tilboði í bryggjustaura fyrir nýjan hafnarkant á Eskifirði. Helstu magntölur eru:
- Framleiðsla á 350x350 steyptum staurum, samtals 8.300 m
- Niðurrekstur steyptra staura, 155 stk
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 24. ágúst 2020.
Óska skal eftir gögnum á netfangið: rob.kamsma@efla.is. Nánari upplýsingar gefur Rob Kamsma hjá Eflu Reykjavík í síma +354 412 6394.
Tilboðum skal skilað rafrænt á netfangið rob.kamsma@efla.is fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. september 2020 og verða þau opnuð á skrifstofu Fjarðabyggðar kl. 14:20 sama dag. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2021.