mobile navigation trigger mobile search trigger
31.05.2021

Vinnuskóli Fjarðabyggðar 2021

Vinnuskóli Fjarðabyggðar 2021

Vinnuskóli Fjarðabyggðar verður starfandi frá 7. júní – 20. ágúst 2021 og er ætlaður unglingum í Fjarðabyggð sem fædd eru árið 2006 og 2007. Hver nemandi starfar virka daga í 5 eða 6 vikur eftir aldri, frá kl. 08:00 - 12:00. Unglingar með lögheimili utan sveitarfélagsins þurfa að sækja sérstaklega um leyfi til þátttöku og verða umsóknir þeirra teknar til greina út frá fjölda umsókna.

Í vinnuskólanum er unnið við störf tengd umhverfismálum á vegum  framkvæmdamiðstöðvar - 85% vinna og fræðsla 15%. Unglingar sem eru með lögheimili í sveitarfélaginu hafa öll rétt til þátttöku í vinnuskólanum.

  • 14 ára (árg. 2007) getur valið um vinnu í fimm vikur - 4 vinnuvikur og 1 fræðsluvika á vegum sjávarútvegsskólans. - Vinnutími er frá 08:00- 12:00
  • 15 ára (árg. 2006) getur valið um vinnu í sex vikur - 5 vinnuvikur og 1 fræðsluvika. Boðið verður uppá fræðslu í lífsleikni - Vinnutími er frá 08:00- 12:00

Athugið að einstaklingar sem eru að ljúka 10. bekk, árgangur 2005 sækja um Sumarstörf í garðyrkju. Hægt er að nálgast upplýsingar um þau störf hér. 

Frekari upplýsingar um Vinnuskólann veitir Helga Björk Einarsdóttir, garðyrkjustjóri á netfanginu helga.b@fjardabyggd.is  eða í síma 470 9000

Sótt er um á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér. Athugið að sækja þarf um á kennitölu barna.