mobile navigation trigger mobile search trigger
24.03.2023

Deildarstjóri við leikskólann Lyngholt Reyðarfirði

Lyngholt er 94 nemenda skóli sem skiptist á 6 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýlegu húsnæði við Heiðarveg. Grunnskóli Reyðarfjarðar er í næsta nágrenni við skólann og á milli stofnana er mikið og gott samstarf. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og uppeldisstefnu Fjarðabyggðar.
  • Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi leikskólans og ber ábyrgð á deildarstarfi.
  • Deildarstjóri annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Deildarstjóri ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Deildarstjóri situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Deildarstjóri skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
  • Önnur verkefni sem skólastjóri felur honum og skilgreind eru á ábyrgðarsviði hans.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla. (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Þekking á uppeldisstefnum Fjarðabyggðar er æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæmi og skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Starfslýsing deildarstjóra í leikskóla

Um er að ræða 100 % stöðu. Við hvetjum áhugasama til að sækja um. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Starfsmenn fá 50.000 kr. greiðslur á mánuði fyrir að matast með börnum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar gefur:

Lísa Lotta Björnsdóttir skólastjóri, lisalotta@skolar.fjardabyggd.is s. 4741257/8608176 og

Gerður Ósk Oddsdóttir aðstoðarskólastjóri, gerdur@skolar.fjardabyggd.is s. 4741257.

Umsóknarfrestur er til 7. júní 2023

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar