mobile navigation trigger mobile search trigger
18.11.2019

Ráðgjafi á fjölskyldusviði

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir laust 100% starf félagsráðgjafa/ráðgjafa.

Um er að ræða afleysingu til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu, á mjög fjölbreyttum og spennandi vinnustað hjá sveitarfélagi sem hefur stækkað hratt á undanförnum árum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið

  • Barnaverndarmál
  • Fjárhagsaðstoð
  • Félagsleg ráðgjöf
  • Þátttaka í ýmiskonar teymisvinnu

Hæfniskröfur:

  • MA próf í félagsráðgjöf eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á málefnum félagsþjónustu og barnavernd er æskileg
  • Reynsla og þekking af valdeflingu og endurhæfingu er æskileg
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Starfslýsing ráðgjafi fjölskyldusviði

Launakjör eru skv. kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Fjarðabyggðar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til 9. desember

Ásta Sigríður Skúladóttir mannauðsstjóri í síma 470-9000 eða á netfanginu asta.skuladottir@fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.