mobile navigation trigger mobile search trigger
19.03.2020

Forstöðumaður sumarfrístundar

Laus er til umsóknar staða forstöðumanns Sumarfrístundar á Eskifirði sumarið 2020. Starfið er 100% starf í sex vikur frá 25 maí til 5. júlí.

Í starfinu felst m.a.:

  • Skipuleggja í samráði við íþrótta- og frístundastjóra og annað starfslið starfið í sumarfrístund með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
  • Halda utan um skráningu barna í sumarfrístund.
  • Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og sinna þroskandi viðfangsefnum jafnt úti sem inni.
  • Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.

Menntun og reynsla:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur uppeldismenntun.
  • Reynsla af vinnu með börnum.
  • Hreint sakavottorð
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli

Hæfniskröfur:

  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Metnaður og dugnaður.
  • Áhugi á að taka þátt í og þróa nýtt verkefni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfslýsing Forstöðumaður sumarfrístundar

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson íþrótta- og frístundastjóri í síma 893 9098 og í gegnum netfangið bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is 

Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2020

Sótt er um starfið rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar.