mobile navigation trigger mobile search trigger
18.04.2023

Vinnuskóli Fjarðabyggðar sumarið 2023

Vinnuskólinn verður starfandi frá 05. júní - 11. ágúst.

Vinnufyrirkomulag: Störf tengd umhverfismálum - 85% vinna og fræðsla 15%.

14 ára (árg. 2009) getur valið um vinnu í fimm vikur - 4 vinnuvikur og 1 fræðsluvika á vegum sjávarútvegsskólans.

Vinnutími er frá 08:00- 12:00

15 ára (árg. 2008) getur valið um vinnu í sex vikur - 5 vinnuvikur og 1 fræðsluvika. Boðið verður uppá fræðslu í lífsleikni

Vinnutími er frá 08:00- 12:00

Unglingar sem eru með lögheimili í sveitarfélaginu hafa öll rétt til þátttöku í vinnuskólanum.

Unglingar með lögheimili utan sveitarfélagsins þurfa að sækja sérstaklega um leyfi til þátttöku og verða umsóknir þeirra teknar til greina út frá fjölda umsókna.

Næsti yfirmaður Vinnuskólans er garðyrkjustjóri.

Frekari upplýsingar um Vinnuskólann veitir Helga Björk Einarsdóttir,

Garðyrkjustjóri helga.b@fjardabyggd.is

Sótt er um á ráðningarvef Fjarðabyggðar