mobile navigation trigger mobile search trigger
22.05.2023

Píanókennari við Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar

Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar óska eftir að ráða píanókennara frá og með 1. ágúst 2023 skólaárið 2023-2024.

Í Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar eru rúmlega 110 nemendur. Kennsla fer fram að mestu á skólatíma. Tónlistarskólinn býr að góðri aðstöðu og er til húsa í sama húsnæði og grunnskólarnir á Eskifirði og Reyðarfirði. Gott samstarf er við grunnskólana og góður starfsandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla á píanó
  • Möguleiki á kennslu á fleiri hljóðfæri ef áhugi er fyrir hendi
  • Möguleiki á tónfræðikennslu

Menntun og hæfniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð menntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í hljóðfæraleik
  • Reynsla af kennslu eða menntun í uppeldisfræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð

Starfslýsing tónlistakennara

Staðan er laus frá 1. ágúst 2023. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ/FÍH. Umsóknarfrestur er til 5. júní

Hvetjum eintaklinga af öllum kynjum að sækja um.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Upplýsingar veitir skólastjóri Alda Rut Vestmann, netfang alda@skolar.fjardabyggd.is