mobile navigation trigger mobile search trigger
25.05.2023

Ráðgjafi í félagsþjónustu

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir ráðgjafa í félagsþjónustu. Um er að ræða 80-100% starfshlutfall til afleysinga í eitt ár með möguleika á áframhaldandi vinnu.

Ráðgjafi í félagsþjónustu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar

Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af félagsráðgjöf eða sambærilegu starfi? Hefur þú brennandi áhuga á því að vinna með fólki ? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast stuðningsþörfum ólíkra einstaklinga jafnt fullorðinna og barna með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.

Starf ráðgjafa í félagsþjónustu heyrir undir stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni:

  • Félagslegráðgjöf til einstaklinga sem leita til félagþjónustunnar svo sem vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, öldrunar, húsnæðis-, fjárhags-, fjölskyldu- og áfengis- eða vímuefnavanda.
  • Málastjórn í stuðningsteymum vegna farsældar barna.
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eru æskileg.
  • Þekking og reynsla af starfi við barnavernd og/eða félagsþjónustu er kostur.
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti skilyrði.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði heilbrigðis- og/eða félagsvísinda.
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eru æskileg.
  • Þekking og reynsla af starfi við barnavernd og/eða félagsþjónustu er kostur.
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti skilyrði.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Þekking á One CRM skjalakerfinu er kostur.

Starfslýsing ráðgjafa

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.

Umsóknarfrestur: er til 15. Júní 2023

Frekari upplýsingar veitir Laufey Þórðardóttir Sviðstjóri fjölskyldusviðs. laufey.thordardottir@fjardabyggd.is sími: 7724399

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar