mobile navigation trigger mobile search trigger
27.04.2020

Skipstjóri hjá Fjarðabyggðarhöfnum

Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf skipstjóra hjá Fjarðabyggðarhöfnum.

Starfið felur í sér skipstjórn á dráttarbát Fjarðabyggðarhafna og ábyrgð á að dráttarbáturinn sé ávallt tilbúinn til notkunar þegar þörf krefur auk afleysingar í hafnsögu. Skipstjóri sinnir auk þess ýmsum störfum og verkefnum hjá framkvæmdamiðstöð.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Skipstjórnarréttindi (2. Stig).
• Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd er kostur.
• Vigtarréttindi er kostur.
• Bílpróf.
• Góð íslensku kunnátta.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.

Starfslýsing

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20.maí 2020.  Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Ásgeir Karlsson, gunnar.a.karlsson@fjardabyggd.is eða í síma 864-0227

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar