Laus er til umsóknar tvær stöður sumarstarfsmanna við Íþróttamiðstöð Stöðvarfjarðar. Störfin er u.þ.b. 80-100% störf í þrjá mánuði
Í starfinu felst m.a.:
Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
- Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 893 9098 og í gegnum netfangið bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2019
Sótt er um starfið rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar með því að smella hér