mobile navigation trigger mobile search trigger
09.04.2020

Sumarstörf flokkstjóra

Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?

Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2005 og 2006 við ýmis umhverfisstörf.  Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum. 

Í starfinu felst m.a.:

  • Almenn garðyrkjustörf. Það er sláttur og hirðing grænna svæði í eigu bæjarfélagsins.
  • Þökulagning,
  • Útplöntunn mismunandi tegunda plantna og ýmiss önnur skemmtileg  útistörf.

Starfslýsing flokkstjóri vinnuskóla

Umsóknarfrestur er til og með  24.maí n.k.

Aðeins er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.