Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna Fjarðabyggðar? Við leitum að einstaklingi sem vill leggja okkur lið á góðum vinnustað. Starfið gegnir veigamiklu hlutverki í að veita íbúum Fjarðabyggðar skilvirka og góða þjónustu. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu og þverfaglega vinnu.
Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf þjónustufulltrúa á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði.
Helstu verkefni:
- Símasvörun fyrir bæjarskrifstofur og stofnanir.
- Móttaka viðskiptavina og gesta.
- Móttaka ábendinga, pósts og flokkun erinda og skráning.
- Skráning mála í skjalakerfi og frágangur mála.
- Stoðþjónusta innan bæjarskrifstofu
- Aðstoð við undirbúning funda og viðburða.
- Annast innkaup og umsjón rekstrarvara og minniháttar skrifstofubúnaðar.
- Annast skipulag mötuneytis og skráningar því tengdu.
- Annast og aðstoðar við undirbúning móttöku gesta, almennra funda og innkaup veitinga ef þess er óskað.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfinu er áskilin.
- Reynsla af þjónustu- og almennum skrifstofustörfum er mikilvæg.
- Reynsla af notkun ritvinnslu- og upplýsingatæknikerfa er mikilvæg.
- Góð íslenskukunnátta og íslensk ritfærni.
- Önnur tungumálakunnátta er kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Gott viðmót og þjónustulund er mikilvæg.
- Samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma 470 9062 eða á netfanginu gunnar.jonsson@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2023 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.