mobile navigation trigger mobile search trigger
15.08.2019

Vélstjóri hjá Fjarðabyggðarhöfnum

Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf vélstjóra fyrir Fjarðabyggðarhafnir, en um er að ræða fullt starf auk bakvakta.

Starfið felur í sér vélstjórn dráttarbáts Fjarðabyggðarhafna, auk annarra starfa á framkvæmda- og þjónustumiðstöð.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Vélstjórnarréttindi.(réttindi C)
• Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd.(æskilegt)
• Vigtarréttindi.(æskilegt)
• Bílpróf
• Góð íslensku kunnátta.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.

Starfslýsing vélstjóra hjá Fjarðabyggðarhöfnum.pdf


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september nk. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Ásgeir Karlsson, gunnar.a.karlsson@fjardabyggd.is eða í síma 864-0227.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér