mobile navigation trigger mobile search trigger
28.04.2021

Listasmiðjur Menningarstofu Fjarðabyggðar í sumar.

Menningarstofa Fjarðabyggðar mun halda úti listasmiðjum sumarið 2021 en það eru skapandi námskeið fyrir börn sem lokið hafa 3.-7. bekk grunnskóla (fædd 2008-2012). Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið víðsvegar um Fjarðabyggð og getur hver smiðja tekið við 12-15 börnum nema ljósmyndasmiðjan sem getur einungis tekið við 8 börnum. Allar nánari upplýsingar um skráningu og þær smiðjur sem eru boði á finna á heimasíðunni með því að smella hér.

Listasmiðjur Menningarstofu Fjarðabyggðar í sumar.

Í boði verða 5 námskeið í sumar: 

TEIKNIKENNSLA OG PERSÓNUSKÖPUN

KVIKMYNDA- OG MARGMIÐLUNARSMIÐJa

ÞVERS OG KRUSS VIÐ HAFIð

HLJÓÐLIST OG GJÖRNINGA

LJÓSMYNDASMIÐJA

Til athugunar fyrir foreldra:

  1. Námskeiðin eru starfrækt fimm daga vikunnar, eftir hádegi, og haldin verður stutt kynning á vinnunni í lok námskeiðs. Nánari upplýsingar um námskeiðin verða sendar í tölvupósti til skráðs forráðamanns áður en námskeið hefst.
  2. Við hvetjum fólk til að sækja námskeið milli staða. Athugið að ekki eru skipulagðar samgöngur milli byggðakjarna fyrir þessi námskeið en við hvetjum foreldra til að skiptast á að keyra á milli og nýta almenningssamgöngur eins og hægt er.
  3. Við biðjum foreldra um að vera tímanlega í að skrá börnin þar sem það er takmarkað pláss í boði. Lágmarksfjöldi á námskeið eru fimm þátttakendur.
  4. Aðeins þeir sem eru skráðir mega vera á námskeiðunum, ef vinir vilja bætast í hópinn skulu foreldrar hafa samband við leiðbeinanda um möguleika á skráningu.
  5. Verð fyrir hvert námskeið er 10.000 kr

- Veittur er 25% systkinaafsláttur (verð: 7500 kr. fyrir hvert barn)

- Ef barn tekur þátt í fleiri en einu námskeiði er einnig veittur 25% afsláttur  (verð: 7500 kr. fyrir hvert námskeið)

  1. Börnin skulu mæta með létt nesti og í þægilegum fötum sem mega verða fyrir hnjaski. Við erum oft bæði úti og inni sama daginn og því er gott að vera klæddur eftir veðri.

Nánari upplýsingar um námskeiðin veitir starfsfólk Menningarstofu í síma 470-9000 og menningarstofa@fjardabyggd.is.

Fylgist með tilkynningum á facebook síðu Menningarstofu.

Verkefnið er skipulagt af Menningarstofu Fjarðabyggðar og hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands en listafólkið tekur einnig þátt í öðrum verkefnum á meðal á dvöl þeirra stendur.