mobile navigation trigger mobile search trigger
23.03.2023

Staða skólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf skólaárið 2023-2024 meðan núverandi skólastjóri er í námsleyfi.
Skólastjóri skal hafa metnaðarfulla framtíðarsýn í skólamálum og vera tilbúinn að leiða faglegt og félagslegt starf innan skólans og stuðla að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er staðsettur í sama húsnæði og leikskólinn, tónlistarskólinn og bókasafnið. Í skólanum ríkir góður starfandi, mikið og gott samstarf er á milli stofnana og öflugt foreldrafélag styður þétt við skólastarfið. Einkennisorð skólans eru "ánægja, ábyrgð og árangur". Skólinn er heilsueflandi skóli og Grænfána skóli. Skólinn nýtir uppeldisaðferðirnar Uppeldi til ábyrgðar og ART og tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans; www.fask.is

Helstu verkefni:
• Ábyrgð á rekstri skólans og þróunarvinnu
• Fagleg forysta, dagleg stjórnun og samhæfing starfskrafta skólans
• Víðtækt samstarf við stofnanir, heimili og samfélag
Menntun og hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
• Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
• Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði

Starfslýsing skólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Skólastjóri skal hafa metnaðarfulla framtíðarsýn í skólamálum og vera tilbúinn að leiða faglegt og félagslegt starf innan skólans og stuðla að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.

Staðan er laus frá 1. ágúst 2023. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 14. apríl.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, í síma 860 - 8331, netfang: thoroddur.helgason@fjardabyggd.is