Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsfólki í hlutastörf um helgar og í sumarafleysingar í búsetuþjónustu á Reyðarfirði. Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu á heimilum fatlaðs fólks þar sem veitt er sólarhringsþjónusta.
Hæfniskröfur:
- Færni í samskiptum við einstaklinga með mismunandi getu og þarfir.
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
- Hæfni til að setja sig í spor annarra.
- Hæfni til að styðja og hvetja.
- Íslenskukunnátta æskileg.
Við bjóðum upp á:
- Sveigjanlegan vinnutíma.
- Frábært og öflugt samstarfsfólk.
- Tækifæri til að taka þátt í umbótastarfi.
- Tækifæri til að láta ljós sitt skína í krefjandi starfsumhverfi.
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.pdf
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2021. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu, Anna H. Árnadóttir anna.h.arnadottir@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000
Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér