Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða fólk í félagslega heimaþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð við heimilishald ásamt því að veita félagsskap o.fl.
Hæfniskröfur:
- Færni í samskiptum við einstaklinga með mismunandi getu og þarfir.
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
- Hæfni til að setja sig í spor annarra.
- Hæfni til að styðja og hvetja.
- Íslenskukunnátta æskileg.
Starfslýsing heimaþjónusta I.pdf
Vinnutími er sveigjanlegur og getur ýmist verið dag-, kvöld- og/eða helgarvinna. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2021. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Magnúsdóttir gudrun.i.magnusdottir@fjardabyggd.is eða í síma 470-9000.
Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðbyggðar með því að smella hér.