Mjóafjarðarhöfn
Lítill 20m kantur
Hafnarbakkar: Ferjubryggja
Fjarðabyggðarhafnir eru næst stærsta höfn landsins, með tæplega þriðjung af öllum vöruútflutningi landsmanna. Átta hafnir eru í rekstri í Fjarðabyggð. Þær eru í Mjóafirði, Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, að Mjóeyri, í Fáskrúðsfirði, á Stöðvarfirði og í Breiðdal. Starfsemi hafnanna er fjölbreytt og spannar allt frá Norðfjarðarhöfn og Mjóeyrarhöfn, sem eru með stærstu höfnum landsins, að Mjóafjarðarhöfn, sem er með þeim minnstu á landinu.
Fjarðabyggðarhafnirnar þjóna öllum skipum, bátum og öðrum sem um þær eiga leið og nær þjónustan til útgerða, fyrirtækja og einstaklinga.
Veitt er sólarhringsþjónusta í vaktsímum hafnanna.