TÓNLISTARSKÓLAR
Í Fjarðabyggð eru þrír tónlistarskólar, Tónskóli Neskaupstaðar, Tónlistarskóli Eskifjarðar- og Reyðarfjarðar og Tónlistarskóli Fáskrúðs- og Stöðvarfjarðar sem einnig þjónar í Breiðdal. Starfsemin er staðsett í grunnskóla hvers staðar. Skólarnir bjóða upp á nám í tónfræði, hljóðfæraleik og söng. Allir íbúar Fjarðabyggðar geta sótt um í tónlistarskólunum. Skólastjórar ákveða hvernig tekið er inn í skólana. Fjöldi kennara og námsásókn ræður hversu marga unnt er að innrita hverju sinni.
Ferli umsóknar
Sækja má um tónlistarnám allt árið. Innritun fer fram í ágúst og desember. Umsækjendur sem ekki komast að, eru teknir inn um leið og færi gefst. Einstaklingar og foreldrar/forráðamenn sækja um á þar til gerðu eyðublaði eða hringja í hlutaðeigandi tónlistarskólastjóra. Skólastjóri bregst við í tölvupósti eða með símtali innan hálfs mánaðar. Nálgast má umsóknir tónlistarskólanna hér.