Mjóeyrarhöfn Reyðarfirði
Mjóeyrarhöfn er við norðanverðan Reyðarfjörð, miðja vegur á milli þéttbýlisins í Reyðarfirði og Eskifirði og heyrir dagleg umsjón hafnarinarinnar undir Reyðarfjarðarhöfn. Mjóeyrarhöfn er með stærri vöruflutningahöfnum landsins. Hún er staðsett skammt frá álveri Alcoa Fjarðaáls og þjónar fyrirtækinu varðandi aðdrætti og útflutning á álafurðum. Hafnargerð fór fram samhliða byggingu álversins og jókst vægi vöruflutninga til muna hjá Fjarðabyggðarhöfnum með tilkomu hafnarinnar. Mjóeyrarhöfn er enn í þróun sem eitt af vaxtarsvæðum sveitarfélagsins fyrir hafnsækna starfsemi. Lengd bryggjukanta er 380 metrar og dýpi 14,5 metri. Vöruflutningar um höfnina hafa farið vaxandi og nema tæplega 1.500 þúsundum tonnum.