Stöðvarfjarðarhöfn
Stöðvarfjarðarhöfn er vinsæl smábátahöfn staðsett utarlega í Stöðvarfirði, en fjörðurinn er stuttur og því þykir gott að gera út þaðan, enda er stutt þaðan á fengsæl mið. Smábátaútgerð hefur farið vaxandi hin síðari ár og hefur landaður afli aukist úr 1.500 - 2.000 tonnum á ári í um 5.000 tonn. Þorskur er uppistaðan í lönduðum afla, en einnig er talsvert um steinbít, keilu og hlýra. Á höfninni er krók- og pallavog. Starfræktur er fiskmarkaður á Stöðvarfirði sem þjónustað hefur báta sem þar hafa landað. Í Stöðvarfjarðarhöfn er heildarlengd bryggjukanta með viðlegurými 278 metrar. Mesta dýpi er 6,5 metri á 80 metra kafla.