mobile navigation trigger mobile search trigger
06.05.2024

Skíðatímabilinu í Oddsskarði lokið

Nú þegar vor er komið í loftið þá er komið að lokum skíðatímabilsins í Oddsskarði. 
Óhætt er að segja að þetta hefur verið einn sá besti vetur um langa hríð. Þrátt fyrir að lokað hafi verið alla páskanna sökum veðurs. 
Skíðatímabilinu í Oddsskarði lokið

Núverandi tímabil fór framúr framúr okkar björtustu vonum og var fjallið opið í 95 daga og var  opið annað hvort laugardag eða sunnudag allar helgar fram að páskum. Um páskana var lengsta samfelda lokunin eða 6 dagar. 

Farnar voru  um 107 þúsund ferðir og fengum við um 10 þúsund gesti í fjallið. Samanborið við veturinn 22/23 var opið í 43 daga og fengum við um 2.832 gesti og farnar voru 29.364 ferðir. Veturinn 21/22 var opið í 60 daga, gestirnir um 1.821 og farnar voru 52.205 ferðir