mobile navigation trigger mobile search trigger
04.04.2019

Búfjársamþykkt Fjarðabyggðar

Á 21. fundi landbúnaðarnefndar þann 14. febrúar sl. vann nefndin drög að búfjársamþykkt fyrir sveitarfélagið.

Búfjársamþykkt Fjarðabyggðar

Á 228. fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar þann 11. mars sl. var bókað "...að drögin verði kynnt hagsmunaaðilum áður en til endanlegrar afgreiðslu kemur…."  

Í samræmi við bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar eru drög að búfjársamþykkt Fjarðabyggðar sett fram til kynningar.

Ábendingum varðandi samþykktina skal beint til umhverfisstjóra á netfangið anna.berg@fjardabyggd.is fyrir 15. apríl næstkomandi.

Umhverfis- og framkvæmdasvið