Laus er staða forstöðumanns við Frístund Eskifjarðarskóla
Laus er til umsóknar 60 % staða forstöðumanns við Frístund Eskifjarðarskóla. Í Frístund eru tæplega 40 börn og þrír starfsmenn.
Leitað er að uppeldislærðum starfsmanni, sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Uppeldismenntun
- Reynsla og hæfni til að vinna með börnum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Skipulagshæfileikar
- Ábyrgð í starfi og stundvísi
Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi séttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2019.
Umsóknarfrestur er til 3. júní 2019.
Upplýsingar veitir Ásta Stefanía Svavarsdóttir aðstoðarskólastjóri astasv@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 476-1472.
Smelltu hér til að sækja um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar