mobile navigation trigger mobile search trigger
21.05.2019

Frístundaleiðbeinandi við Frístund Eskifjarðarskóla

Laus er til umsóknar 50 % staða frístundaleiðbeinenda við Frístund Eskifjarðarskóla. Í Frístund eru tæplega 40 börn og þrír starfsmenn.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Uppeldismenntun er æskileg.
• Reynsla og hæfni til að vinna með börnum.
• Frumkvæði og faglegur metnaður.
• Ábyrgð í starfi og stundvísi.

Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Starfslýsing skólaliði I aðstoð í lengdri viðveru.pdf

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2019.

Umsóknarfrestur er til 3. júní 2019.

Upplýsingar veitir Ásta Stefanía Svavarsdóttir aðstoðarskólastjóri astasv@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 476-1472.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.