mobile navigation trigger mobile search trigger
01.08.2021

Húsvörður við Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar

Staða húsvarðar við Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar er laus til umsóknar frá og með 1. ágúst nk.

Um er að ræða 100% stöðu er fellst í umsjón með húsnæði og lóð skólamiðstöðvarinnar.

Leitað er að starfsmanni sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.

Helstu verkefni:

  • Eftirlit með húsnæði, húsbúnaði og skólalóð.
  • Opna grunnskóla að morgni og loka að kvöldi.
  • Annast smærri lagfæringar og viðhald á skólahúsnæði.
  • Sjá um að aðgengi að skólamiðstöð sé viðunnandi.
  • Sinna gæslu nemenda í frímínútum.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu húsvarðar við Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar.

Hæfnikröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi er æskileg, s.s. iðnmenntun.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð samvinnu- og samskiptahæfni.
  • Jákvæðni og áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði í starfi

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttafélags

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst

Nánari upplýsingar gefur Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar  eya@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið rafrænt á ráðningarvef Fjarðabyggðar.