mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2020

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Lausar eru til umsóknar kennarastöður við  Grunnskóla Reyðarfjarðar. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks.  Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla Reyðarfjarðar stunda um 210 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði þar sem einnig eru til húsa bókasafn staðarins og tónlistarskóli.

Leitað er eftir kennurum sem geta sinnt eftirfarandi kennslu:

  • Tungumálum
  • Raungreinum
  • Sérkennslu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing grunnskólakennari

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.grunnrey.is. Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir í síma 474 1247 eða á netfangið asta@skolar.fjardabyggd.is

Staðan er laus frá 1. ágúst 2020. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 17. maí. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér