Skólaliði óskast til starfa í Nesskóla. Um er að ræða 50% stöðu tímabundið út skólaárið. Starf skólaliða felst m.a. í þrifum á skólahúsnæði, gæslu í frímínútum og aðstoðar í matsal á matmálstímum.
Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eysteinn Þór Kristinsson skólastjóri í síma 4771124 / 8461374 eða á eysteinn@skolar.fjardabyggd.is
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér