mobile navigation trigger mobile search trigger
25.07.2019

Störf í búsetuþjónustu á Reyðarfirði

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsmönnum í búsetuþjónustu á Reyðarfirði.

Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu á heimilum fatlaðs fólks.

Starfshlutfall eftir samkomulagi.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Hæfniskröfur:
• Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
• Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
• Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu, Anna H. Árnadóttir – anna.h.arnadottir@fjardabyggd.is.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til 19.ágúst nk.

Starfslýsing.

Sótt er um starfi á ráðningarvef sveitarfélagsins.