mobile navigation trigger mobile search trigger
27.11.2020

Tendrun jólatrjáa í Fjarðabyggð 2020

Starfsmenn Fjarðabyggðar vinna nú að því hörðum höndum að skreyta bæjarkjarnanna. Settar hafa verið upp skreytingar á ljósastaura víða, og unnið er að því að sitja upp ljósaskreytt jólatré.

Tendrun jólatrjáa í Fjarðabyggð 2020

Undafarinn ár hefur sú skemmtilega hefð skapast að tendra ljósin á jólatrjám Fjarðabyggðar við hátíðlega athöfn í hverjum byggðakjarna. Hefur þessi athöfn verið afar vel heppnað upphaf á aðventunni á hverjum stað og mjög skemmtileg hefð.

Vegna þeirra takmarkanna á samkomuhaldi sem í gildi eru um þessar mundir, vegna COVID 19, er ljóst að erfitt verður um vik að halda slíkan viðburði í ár. Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti því á fundi sínum á dögunum þá tillögu upplýsinga- og kynningarfulltrúa að leitað yrði til leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð um að hver skóli haldi notalega aðventustund á skólatíma þar sem boðið verður upp á ávexti og piparkökur.  Skólarnir tóku vel í þessa tillögu og því mun hver skóli halda smá viðburð vegna þessa núna í desember. Fjarðabyggð mun eins og undanfarinn ár útvega ávexti og piparkökur og mun dreifa í allar skólastofnanir.