mobile navigation trigger mobile search trigger
19.01.2021

Tilkynning frá aðgerðarstjórn 19. janúar 2020

Fimm eru enn með virk COVID smit á Austurlandi, allt landamærasmit. Allir eru þeir í einangrun en við ágæta heilsu. Vonir standa til að einhverjir þeirra verði útskrifaðir fljótlega.

Tilkynning frá aðgerðarstjórn 19. janúar 2020

Bólusetning hófst að nýju í dag og lýkur á morgun. Rétt um fjögur hundruð íbúar Austurlands verða þá bólusettir fyrir veirunni af um tíu þúsund. Enn er því nokkuð í land. Við erum þó lögð af stað öruggum skrefum og mikilvægt að gleðjast yfir því þar sem bólusettir hafa verið okkar viðkvæmustu íbúar og hluti framlínufólks. Næstu skref tökum við svo af sama öryggi, æðruleysi og festu og við höfum gert hingað til. Þannig komumst við í gegnum þetta saman.