Fjarðabyggð auglýsir tvær nýjar stöður verkefnastjóra félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð. Um er að ræða 100% starf.
Verkefnastjóri félagsmiðstöðva ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd félagsmiðstöðvarstarfs fyrir börn og unglinga á aldrinum 10‐16 ára. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Helstu verkefni:
Starfið felur í sér mikla beina ábyrgð á stjórnun, leiðsögn, samræmingu eða þjálfun og þróun annarra starfsmanna. Vinnan felst í verkstjórn, leiðsögn og samræmingu á vinnu starfsmannahóps sem starfa á fleiri en einum vinnustað, að meðtalinni úthlutun vinnu/verkefnum.
- Skipuleggur dagskrá félagsmiðstöðva að lágmarki 6 vikur fram í tímann.
- Verkefnastjóri félagsmiðstöðva tekur þátt í 2-3 hefðbundnum opnunum félagsmiðstöðvar á viku og verkefnum sem fylgja þeim, þ.e.a.s. undirbúningi og frágangi.
- Hefur umsjón yfir skipulagningu og framkvæmd sameiginlegra viðburða í samstarfi við forstöðumann tómstunda- og frístundamála, til dæmis Kuldabola og SamAust auk ferðalaga á vegum félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð.
- Þátttaka í stefnumótun fyrir starf félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð og gerð starfsáætlunar fyrir félagsmiðstöðina í samráði við forstöðumann tómstunda- og frístundamála og annað starfsfólk. Til samræmis við ákvæði laganna er markmið Fjarðabyggðar að bjóða upp á metnaðarfullt tómstundastarf, þ.e.a.s. góða aðstöðu og fjölbreytt frístunda- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga.
- Þátttaka í þróun málaflokksins.
- Ábyrgð á útgjöldum af samþykktri fjárhagsáætlun eða sambærilegum tekjum. Þessi ábyrgð kann að fela í sér þátttöku í gerð eða eftirliti með viðeigandi fjárhagsáætlun og tryggingu á skilvirkri notkun fjármuna.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við forstöðumann tómstunda- og frístundamála Fjarðabyggðar. Til dæmis umsjón með ungmennaráði og umsjón með sumarfrístund barna.
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Til dæmis tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldisfræðimenntun eða sambærilegt.
- Reynsla af stjórnun.
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum.
- Þekking á málaflokknum og þekking á lögum og reglugerðum er varða starfsemina.
- Góð tölvukunnátta.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, góð samstarfshæfni og geta til að miðla upplýsingum.
- Fumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Starfslýsing verkefnastjóra félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð.pdf
Nánari upplýsingar um starfið gefur Eyrún Inga Gunnarsdóttir forstöðumaður tómstunda- og frístundamála eyrun.i.gunnarsdottir@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. Júní og skulu umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi berast í gegn um ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér. Viðkomandi þarf að hefja störf í ágúst 2021.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér