mobile navigation trigger mobile search trigger
23.10.2019

Vinna við ljósleiðara - rof á sambandi 12.nóvember

Míla hefur skipulagt vinnu við ljósleiðara á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar 12. nóvember frá kl. 01:00 til kl. 06:00, varadagsetning er 14.nóvember frá kl. 01:00 til kl. 06:00. Reiknað er með að rof á sambandi verði um fimm klukkustundir. Á þessum tíma munu öll fjarskipti er tengjast Mílu liggja niðri í Neskaupstað. Búið er að upplýsa fjarskiptafélögin um framkvæmdina en þau geta veitt frekari upplýsingar um hvort og hvernig framkvæmdin hefur áhrif á fjarskipti og þjónustu.