mobile navigation trigger mobile search trigger
12.03.2021

Flokkstjórar í Vinnuskólanum

Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?

Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2006 og 2007 við ýmis umhverfisstörf. Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum.

Menntun og reynsla:

  • Þarf að hafa náð 18 ára aldri.
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Jákvætt og gott hugarfar
  • Skipulags- og samskiptahæfni.

Hæfnisþættir:

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Vinna í hóp
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir, garðyrkjustjóri, helga.b@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000

Umsóknarfrestur er til og með 17.maí n.k. og aðeins er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is