mobile navigation trigger mobile search trigger
03.04.2020

Kennarastaða við Eskifjarðarskóla

Staða grunnskólakennara við Eskifjarðarskóla 

Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans. Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Eskifjarðarskóla stunda um 150 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar

Starfslýsing grunnskólakennari

Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2020.

Upplýsingar veitir Ásta Stefanía Svavarsdóttir skólastjóri astasv@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 476-1355.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér