mobile navigation trigger mobile search trigger
14.06.2019

Kennari við Eskifjarðarskóla

Eskifjarðarskóli leitar að áhugasömum kennara í verkgreinakennslu frá 1.- 10. bekk og náttúrufræði á unglingastigi skólaárið 2019-2020.
 
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Eskifjarðarskóli er 150 barna grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.
Um er að ræða rúma 80% - 100% starfshlutfall. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2019.
Menntunar- og hæfnikröfur:
. Leyfisbréf grunnskólakennara
. Vilji og hæfni til teymisvinnu með öðrum kennurum
. Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
. Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
. Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
. Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
. Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2019.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Stefanía Svavarsdóttir, skólastjóri, í síma 863-5681. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.