mobile navigation trigger mobile search trigger
15.01.2019

Afleysingastaða við Leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt á Reyðarfirði auglýsir lausa til umsóknar afleysingastöðu við leikskólann. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Lyngholt er skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 100 % starf

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af starfi með börnum.
• Góð þekking á uppeldisstefnu Fjarðabyggðar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Frumkvæði og skipulagshæfni.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Ábyrgð og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 25 janúar 2019.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is  eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Starfslýsing starfsmaður leikskóla.pdf

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.