mobile navigation trigger mobile search trigger

Fjölmiðlatorg

Á fjölmiðlatorgi Fjarðabyggðar má nálgast á einum stað fréttir af vef sveitarfélagsins og tilkynningar, merki þess og annað sem gagnast kann störfum fjölmiðla. Stefna Fjarðabyggðar í upplýsinga- og kynningarmálum er að veita góðar og gagnsæjar upplýsingar um nærsamfélagsþjónustu sveitarfélagsins og réttindi íbúa. Áhersla er lögð á góð samskipti við fjölmiðla og stuðning við samfélagslegt hlutverk þeirra. Lögum samkvæmt ber sveitarfélagið einnig ríka upplýsingaskyldu gagnvart íbúum um málefni þess og ákvarðanir, bæði hvað þjónustu varðar, fjárhag og umhverfi og þau markmið sem að er stefnt.

Hér má nálgast Samskiptastefnu Fjarðabyggðar

Auglýsingar og auglýsingastyrkir

Allar beiðnir um auglýsingar og auglýsingastyrki skal berast á netfangið auglysing@fjardabyggd.is                                                           

Frekari upplýsingar veitir upplýsingafulltrúi.

Upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar

Haraldur Líndal Haraldsson
Netfang: haraldur.haraldsson@fjardabyggd.is 

Beinn sími: 470 9092
Farsími: 697 7335

Fréttir

Útboð á tjaldsvæðum í Fjarðabyggð

30.04.2024 Útboð á tjaldsvæðum í Fjarðabyggð

Á dögunum voru opnuð tilboð í rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Alls bárust tilboð frá sex aðilum í mismunandi tjaldsvæði í Fjarðabyggð. Engin tilboð bárust í tjaldsvæðið á Eskifirði og Norðfirði.

Lesa meira

Tilkynningar

Rafmagnleysi í Breiðdalsvík 30.04.2024 - UPPFÆRT

29.04.2024

Breytt tímasetning er á rafmagnsleysinu sem verður í stórum hluta Breiðdalsvíkur 30.04.2024 vegna viðhalds á dreifikerfi Rarik. Ný tímasetning er frá kl 23:00 til kl 03:00. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Austurlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Lesa meira

HÖNNUNARSTAÐALL

Hönnunarstaðall setur ramma utan um notkun byggðarmerkis Fjarðabyggðar í prent- og kynningarmálum sveitarfélagsins. Hönnunarstaðallinn er leiðbeinandi tæki fyrir starfsfólk Fjarðabyggðar sem og aðra er koma að kynningarmálum, rafrænt sem og prentuðum. Sveitarfélagið Fjarðabyggð notar merki Fjarðabyggðar á öll gögn, auglýsingar, kynningar, útgáfur og ytri merkingar til að auðkenna starfsemi Fjarðabyggðar. Fylgja skal þessum hönnunarstaðli og ekki má í neinum tilvikum breyta litum merkisins. Hönnunarstaðallinn er ekki tæmandi og ef vafa atriði koma upp varðandi notkun byggðarmerkisins skal hafa samband við upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar.

Nánari útfærslur og dæmi má finna í Hönnunarstaðli og merkjunum er hægt að hlaða niður héðan.