mobile navigation trigger mobile search trigger
28.12.2022

Bæjarstjórnarfundur 28. desember- Bein útsending

Boðað hefur verið til fundar í bæjarstjórn Fjarðabyggðar miðvikudaginn 28. desember klukkan 15:00 og verður haldinn í gegnum fjarfundakerfið ZOOM. Fundurinn verður að venju sýndur í beinni útsendingu á vefnum. Hægt er að finna hana með því að smella hér.
Bæjarstjórnarfundur 28. desember- Bein útsending
Á dagskrá fundarins er meðal annars staðfesting á lóðarleigusamningi við CIP, tillaga að nýju álagningarhlutfalli útsvars og valdframsal í barnaverndaþjónustu í samræmi við breytingar á barnaverndalögum.
Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins má fá í síma 470 9000. Að fundi loknum verður upptaka fundarins aðgengileg á Youtube rás Fjarðabyggðar.

Frétta og viðburðayfirlit