Félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar opnuðu í dag nýjan búsetukjarna og skammtímavistun fyrir fötluð börn að viðstöddu fjölmenni.
Skáli, nýr búsetukjarni og skammtímavistun fyrir fötluð börn opnar

Húsnæðið hefur fengið nafnið Skálinn, Vigfús Ólafsson kom með þá tilnefningu í samkeppni um nýtt nafn á húsnæðinu. En nafnið vísar til húss sem þar stóð áður fyrr og var reist í kringum 1913.
Með þessari opnun er verið að fjölga íbúðum í búsetuþjónustu Fjarðabyggðar og gera þjónustuna við fatlað fólk, fötluð börn og fjölskyldur þeirra enn betri.
Við hönnun búsetukjarnans voru fjölbreyttar þarfir íbúa hafðar að leiðarljósi. Nýjasta velferðartækni verður nýtt, sem gengur út á að viðhalda og auka öryggi, virkni og sjálfstæði fólks í daglegu lífi.
Markmiðið með þessu er að styðja enn frekar við og styrkja sjálfstæði einstaklinga með stuðningsþarfir í sjálfstæðri búsetu.
Í húsnæðinu eru sex einstaklingsíbúðir og skammtímavistun fyrir fötluð börn. Þar er einnig starfsmannaaðstaða, setustofa fyrir íbúa og gesti ásamt tækjageymslu.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra sagði við þetta tilefni að mikið gleðiefni væri að opna búsetukjarnann og skammtímavistunina. „Með þessu er mikilvægt skref stigið til að bæta stuðning við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Ég óska íbúum Fjarðabyggðar hjartanlega til hamingju.“
,,Við stöndum hér saman við hátíðlegt tilefni á nýjum áfangastað í þjónustu hér í Fjarðabyggð og við eitt mikilvægasta hlutverk okkar sem samfélags – að tryggja fólki aðstæður til að lifa með reisn, öryggi og virðingu". sagði Ragnar Sigurðsson, formaður fjölskyldunefndar.
Laufey Þórðardóttir bætti við: „Þetta er mikilvægur áfangi fyrir samfélagið okkar. Við höfum lagt áherslu á að hanna aðstöðuna með þarfir íbúanna í huga og tryggja að þeir fái bestu mögulegu þjónustu.“
Reyðarfjörður var valinn þar sem hann er miðsvæðis og gott aðgengi að nauðsynlegri þjónustu. Einnig gefur nálægðin við Múlaþing möguleika á samstarfi um þjónustu.
Fyrstu íbúar munu svo flytja inn í næsu viku og og allir íbúar verða fluttir í sínar íbúðir fyrir lok júnímánaðar.



