mobile navigation trigger mobile search trigger

Geðlestin í Gulum september á Austfjörðum

25.09.2025

Klukkan 20:00

Geðlestin verður í Neskaupstað 25. september kl. 20:00 í Nesskóla. Við bjóðum ykkur öllum til samtals um geðrækt og mikilvægi hennar út lífið og eiga með okkur góða stund sem lýkur með stuttum tónleikum þeirra félaga Emmsjé Gauta og Þormóðs. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á kaffi og með‘í.

Geðlestin í Gulum september á Austfjörðum

Geðlestin í Gulum september

Í tilefni af Gulum september* ætla landssamtökin Geðhjálp öðru sinni að ferðast um landið og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði. Geðlestin er heiti verkefnisins, sem byrjaði með áherslu á börn og ungmenni, en þróaðist á síðasta ári í verkefni þar sem við hittum sveitarstjórnir, félags- og skólamálayfirvöld og lögreglu annars vegar og almenning hins vegar.

 

Á hádegisfundinum kynnir Geðhjálp ýmsa geðheilsuvísa (mælikvarða), fjallar um mikilvægi geðræktar, hvernig draga megi úr fordómum og mögulegar leiðir til þess að efla forvarnir. Markmiðið er einnig að eiga samtal við heimafólk og hvað helst brennur á því í tengslum við geðrækt og geðheilbrigði. 

 

Kvölddagskrá er aðeins öðruvísi sett upp. Hún hefst á stuttri kynningu á Geðhjálp og starfi samtakanna. Eftir það verður farið yfir mikilvægi reglulegrar geðræktar út lífið og ýmsar leiðir ræddar. Þá mun einstaklingur segja frá sinni reynslu af geðrænum áskorunum og hvernig bata var náð og hvaða verkfæri hafa reynst best. Eftir reynslusöguna verða umræður og í lokin stíga þeir félagar Emmsjé Gauti og Þormóður á svið og leika nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun. Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.

 

Viðkomustaðir Geðlestarinnar haustið 2025


Þriðjudagur 16. september

Kvöld kl. 20:00  á Hvolsvelli í félagsheimilinu Hvoli


Miðvikudagur 17. september

Fyrir og eftir hádegi fundir á Reykjanesi og Suðurlandi


Mánudagurinn 22. september

Kvöld kl. 20:00 á Ísafirði í safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju


Þriðjudagurinn 23. september

Hádegi Strandabyggð og Reykhólar – kvöld kl. 20:00 á Sauðárkróki á Gránu


Miðvikudagurinn 24. september

Hádegi Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð – kvöld kl. 20:00 á Akureyri í Hofi


Fimmtudagurinn 25. September

Hádegi Múlaþing og Fjarðabyggð – kvöld kl. 20:00 í Neskaupstað í Nesskóla

 

*Gulur september er forvarnarátak sem er ætlað að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna.

Frétta og viðburðayfirlit