Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri og Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri Fjarðabyggðarhafna áttu fund með Guðmundi Guðlaugssyni og syni hans Birni Þór Guðmundssyni.
18.07.2025
Báturinn Rex kominn til Fáskrúðsfjarðar

Guðmundur hefur síðastliðin tvö ár verið að gera upp bátinn Rex sem nú stendur í tjörninni við Búðargrund.
Þess má geta að Guðmundur gaf alla sína vinnu við verkið og fenginn var styrkur frá Fjarðabyggðarhöfnum til efniskaupa og flutning.
Það var Einar Sigurðsson, skipasmiður sem byggði bátinn árið 1964 en Einar starfaði á Fáskrúðsfirði nánast alla sína starfsævi og byggði mörg skip og báta.
Rex verður formlega afhentur Fáskrúðsfirðingum kl. 19:30 laugardaginn 19. júlí við Rex.