Bæjarráð tók fyrir á fundí sínum leyfisveitingar og heimildir til þess að hefja laxeldi í Mjóafirði. Bæjarráð Fjarðabyggðar ítrekar fyrri bókanir sínar þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að ráðist verði tafarlaust í útboð á sjókvíaeldi í Mjóafirði. Málið hefur dregist um of og ljóst er að töf á framgangi þess hefur neikvæð áhrif á framtíðarsýn og byggðafestu í firðinum.
06.06.2025
Laxeldi í Fjarðabyggð

Mjóifjörður býr yfir góðum aðstæðum til eldis og hefur samfélagið þar sjálft ítrekað lýst eindregnum vilja til að taka þátt í þeirri atvinnuuppbyggingu sem sjókvíaeldi getur skapað. Núverandi kyrrstaða og bið eru ekki í samræmi við jákvæða byggðaþróun, né heldur þá ábyrgð sem fylgir því að styðja við brothættar byggðir.
Bæjarráð skorar á stjórnvöld að hraða nauðsynlegri málsmeðferð og gera þegar í stað ráðstafanir til að tryggja útboð á leyfum í Mjóafirði. Það er forsenda þess að skapa ný atvinnutækifæri og styrkja samfélagið.