Fimmtudaginn 5. júní nk. klukkan 17:00 mun nýr búsetukjarni og skammtímavistun fyri fötluð börn verða opnaður. Af því tilefni mun Fjarðabyggð bjóða til opnunarathafnar.
04.06.2025
Opnun nýs búsetukjarna og skammtímavistun fyrir fötluð börn

Dagskrá opnunarinnar er eftirfarandi:
- Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, opnunarávarp.
- Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs og fjölskyldunefndar Fjarðabyggðar ávarpar gesti og kynnir nafn á húsinu sem valið var úr innsendum tillögum.
- Tónlistaratriði – Karitas Harpa Davíðsdóttir ásamt nemendum úr tónlistarskóla Fjarðabyggðar.
Öll velkomin