Útskrift 10. bekkjar Nesskóla fór fram við hátíðlega athöfn í gær, fimmtudaginn 5. júní. Karen Ragnarsdóttir skólastjóri setti athöfnina og á eftir henni gladdi Máni Franz viðstadda með fallegu píanóspili. Ræða umsjónarkennara, Sigrúnar Júlíu Geirsdóttur, var flutt í gegnum myndband þar sem hún gat ekki verið viðstödd.
Nesskóli útskrifar nemendur

Þó að smá tækniörðugleikar hafi komið upp þegar myndbandið hætti að virka, tók aðstoðarskólastjóri við keflinu og lauk ræðunni af stakri snilld. Í henni voru rifjaðar upp eftirminnilegar stundir úr skólagöngunni, sérstaklega 9. bekkjar sýningin og ógleymanleg Erasmusferð til Châteauroux í Frakklandi.
Allir viðstaddir tóku virkan þátt í dagskránni með söng. Þar sem var sungið lagið "Í síðasta skipti" með Friðrik Dór, allir viðstaddir tóku þátt með því að syngja og standa upp eða setjast á þeim stöðum sem átti við þau. Sex nemendur, þær Sigríður Tinna, Súsanna, Halla Margrét, Unnur Þóra, Fanney og Emiliana, héldu hughrifamiklar ræður þar sem þær rifjuðu upp minningar frá hverju skólastigi fyrir hönd bekkjarins.
Hápunktur dagsins var þegar fyrrum kennarar bekkjarins, þær Úrsúla og Sigga Magga, mættu óvænt sem leynigestir. Þær voru kynntar inn með laginu "Shallow" eftir Lady Gaga, sem var þeirra einkennislag á árunum sem þær kenndu bekknum frá 3. upp í 7. bekk. Tilfinningarnar fengu að flæða þegar gömlu kennararnir og nemendur hittust á ný, enda höfðu myndast sterk tengsl á þeim fjórum árum sem þær kenndu bekknum.
Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, aðstoðarskólastjóri og einnig foreldri í bekknum, hélt hugljúfa ræðu þar sem hún fagnaði fjölbreytileika hópsins og listrænum hæfileikum þeirra. Hún minntist sérstaklega á framlag þeirra til skólans, þar á meðal skreytingar og málun á nýjum klifurvegg. Minntist á framúrskarandi hæfileikum í Kardemommubænum og hversu góð þau væru að tala sig út úr hlutunum, sem við teljum vera góðan undirbúning fyrir samningaviðræður seinna í framtíðinni.
Foreldrar afhentu nemendum glæsilega myndabók til minningar um skólaárin, sem var enn veglegri fyrir þær sakir að tveir nemendahópar höfðu safnað saman myndum fyrir lokaverkefni sín. Hátíðinni lauk með því að nemendur sungu lagið "Farinn" eftir Skítamóral af mikilli innlifun.
Eftir myndatöku var boðið upp á veglegt kaffihlaðborð þar sem foreldrar og útskriftarnemar nutu samverunnar og horfðu á myndasýningu úr nýju myndabókinni. Það var einstaklega viðeigandi ending á þessum merkisdegi í lífi nemenda, kennara og foreldra.
Við óskum útskriftarnemum Nesskóla 2025 velfarnaðar á nýjum vegferðum og þökkum þeim fyrir ógleymanlegar minningar og skemmtileg ár í skólanum.