Þann 5. júní sl. lauk nemendadögum og fram fór útskriftarathöfn nemenda í 1.-10.bekk. Umsjónarkennarar afhentu umsjónarnemendum vitnisburðarskírteinin sín og 10.bekkur sýndi myndband sem þeir höfðu útbúið um lífið í skólanum.
10.06.2025
Útskrift 1.-10.bekkjar Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 5.júní 2025

Að athöfn lokinni buðu 10.bekkur og foreldrar þeirra upp á kaffi og meðlæti fyrir fjölskyldur sínar. Við óskum nemendum í 10.bekk velfarnaðar í nýjum verkefnum í haust. Það verður gaman að fylgjast með þeim í lífi og starfi í framtíðinni.
Myndir frá athöfninni má nálgast hér.
Starfsfólk Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og hlökkum til að sjá alla á ný í ágúst.
Frétt af heimasíðu GF.